Góðar stelpur fara til himna, vondar stelpur fara hvert sem þær vilja!
Aðrar Myndir
10.05.2006 23:18:37 / sunna

!!HÆTT!!??

haha ég nenni ekki að vera með þessa síðu ein svo ég búði til nýja síður með Stefaníu, Írisi og Ásdísi

www.rjominn.tk

allir að kíkja

Ég held allavega að ég ætla að hætta með þessa síðu, ég nenni ekki að vera með 2. Ég veit samt ekki hvað unnur ætlar að gera?


» 5 hafa sagt sína skoðun

07.05.2006 10:49:23 / sunna

eitt stykki bloggfærsla

jæja 2 próf búin af 7 - 3 dagar af 10

Getið hver kom upp í hausinn minn í gær þegar ég var í sakleysinu minu að reyna að sofna? Ég held að Ásdís Eva sé búin að fatta það, því það var enginn en Páll nokkur Islam jarðfræðikennari. Já Ásdís takkkk fyrir það. eeenn Neinei það var ekki nóg fyrir hann að birtast bara þarna í hausnum á mér, hann gat ekki bara staðið þarna óóneii.... Ég grét mig í svefn þetta kvöld

En heyrðu ég veit ekki hvort ég nenni að vera með þessa síðu þar sem ég er eina manneskjan sem bloggar hérna!!! nema á 5 mánaða fresti kemur unnur fersk inn


» 8 hafa sagt sína skoðun

28.04.2006 18:20:30 / unnur

yndislegt og yndislegt

mmm, þetta er búinn að vera næææs dagur:) Byrjaði þannig að ég kláraði spænsku munnlega prófið (kannski ekki beint með stæl, en ég meina) þá var klukkan 8:30 og ég búin í skólanum. Ég staldraði aðeins lengur uppí skóla en skellti mér síðan uppí ms;) Auður og Gunnar óli bryllerðuðu á e-ju jarðfræðiprófi:p Skelltum okkur síðan í ljós sem að var alltof heitt miðað við veðrið sem var b.t.w. yndislegt. Laugardalslaugin var tekin í framhaldi og reynt að vörka tanið aðeins meira, við vorum nú samt alveg eins og næpur hliðina á eldriborgurunum;) Ég kíkti síðan í smá heimsókn í mr og síðan fórum við kata á Oliver. Það var líka mjög næs;) Núna er ég í algjörri pásu frá djamminu og ætla því á tónleika með Ragnheiði Gröndal og Eivöru í kvöld. Væntanlega ágætis skemmtun;) Síðan verður tekið hressilegt djamm út í Köben þann 18. maí:D

» 0 hafa sagt sína skoðun

22.04.2006 20:35:31 / sunna

verd ad baeta einu inna thar sem eg kemst nuna i tolvunna

okey eg hafdi einn almennilegan dag til ad liggja i solinni og fa brunku, en eg for allt of akaft i brunkuna og sleppti ad nota solarvorn tannig ad eg brenndist illilega a ollum utlimum likamans og ofur bruna folkid sem er herna horfir nuna skringilega a mig tar sem eg er raudari en allt sem tau hafa sed adur. Og svo sagdi einn gaur herna upp ur thurru vid mommu ad hun vaeri svo hrillilega hvit og ad hann hafdi aldrei sed svona adur, tha leid mer mjog illa thar sem mamma er brunust af okkkur >S

'Eg og OPRAH WINFREY erum bara tottally best friends nuna, vid gistum sko a sama hoteli. Thegar vid vorum ad keyra framhja husinu hennar tha var hun akkurat ad stiga utur limmunni sinni og hun veifadi til OKKAR (min) uffuuff, -talandi um seleb-    thid verdid ad bida eftir ad snerta mig thangad til ad eg kem heim!!

Eg aetladi ad vera rosa rosa dugleg ad laera i ferdinni og trod ollum b'okunum nidri tosku og en eg hef ekki enn opnad eina einustu bok!

dagskrain er:

  • a morgun (23.04) Universal russibana gardur
  • (24.04)svo aftur 'i universal a hinn
  • (25.04) 'i vatnssrennibrautagardur
  • (26.04) ad VERSLA

» 2 hafa sagt sína skoðun

19.04.2006 14:25:50 / unnur

Páskafrí á enda en hérna er ennþá partei:)

Hérna sit ég í hnakkaskóla Íslands og hliðina á mér situr hnakki hnakkanna;P (þið vitið öll hvern ég er að tala um)  Það sem ég hef áorkað í dag: Næstum því sagt upp í gömlu vinnunni, fengið nýja vinnu;), reynt að vera geðveikt holl en féll á stjörnutorgi, spjallað við róna í mjóddinni og reykt hass (djók).  Planið er síðan að svindla smá og éta eitt stykki páskaegg (fjórða í röðinni:S).  Það er einmitt svo sneðugt fyrir fátæka námsmenn eins og mig að skreppa í krónuna og kaupa páskaegg á niðurgreiddu verði;)  Í lokin ætla ég að skella inn nokkrum myndum frá páskadag;) enjoy


» 1 hafa sagt sína skoðun

14.04.2006 18:03:41 / unnur

Fyrir/Eftir

Ég ætla bara að skella inn tveim ansi skemmtilegum myndum...Enjoy;)

   Sunnur fyrir;)

   Sunnur eftir;P


» 1 hafa sagt sína skoðun

13.04.2006 19:08:34 / unnur

Ó já;)

Ahhh, yndislegur dagur:) Ekkert jafn æðislegt og að vakna ferskur eftir aðeins of mikið djamm og djús. En gærkvöldið var frábært! Við byrjuðum heima hjá Höllu sætu og skemmtum okkur við blöndun misgóðra drykkja:P Við Auður þurfum að taka okkur í gegn í kokteilgerðinni;P Eftir það var haldið niður í bæ með nokkrum stoppum. Maður hitti nokkra gamal kunningja, alltaf jafn gaman;) Ég kíkti aðeins inná NASA á Deep Dish með Evu og Sól en saknaði hinna svo mikið að ég lét sækja mig;) Haldið var heim til Hjálmars og tekin nokkur dansspor með einn ískaldan í hendinni. Síðan var það ekkert nema ferskleikinn uppmálaður í morgun, eða þannig;P Þar sem maður er búinn að vera svo "duglegur" að læra held ég að það sé tekið chillið á það í kvöld, eitthvað næs;) Já, og vá, allir verða að sjá Lucky number Slevin með hönkinu Josh Hartnett;) Og hann er ekki það eina góða við myndina:P

» 3 hafa sagt sína skoðun

10.04.2006 19:29:32 / sunna

Florída hér kem ég !









Strendurnar


    Disney world


Hótel!


og feitir kanar

Ef einhver vill að ég kaupi eitthvað fyrir þá, þá verður hann að koma með pening fyrir 1.00 á morgun :) blessbless


» 5 hafa sagt sína skoðun

06.04.2006 18:40:16 / sunna

Páskagaman

Hef þær fréttir að færa að ég er ekki að fara til sigló um helgina. Mamma bannar mér það út af ófærð. Eða það kemur í ljós á morgun, ég ætla að reyna að tala hana til því annars dey ég út af óbrettahvörfum (ég skil þetta orð ekki) en jááá

Svo keppti ég minn seinasta leika á lífsferlinum mínum í handbolta á þriðjudeginum. Mundi ekki orða að þetta hefði verið uppáhalds eða besti leikurinn minn,, fúúúllltt

Endar pottþétt með því að ég þurfti að fara með ykkur í þetta partý á morgun

Flórída á þriðjudag!

Kosningadagar í MH núna,, mmmm maður búin að bæta á sig nokkrum kílóum.... Besta tilþrifin hjá Írisi Þórs í vikunni, sú er búin að byrgja sig upp með smokka ... Svo á ég ekki að mæta í skólann á morgun því ég er "dauð".. stefanía skildi þessi skemmtilegu skilaboð til mín í dag.. hlakkar til á morgun og sjá hvað vöðvatröllið ætlar að gera

Brúnkan hennar Unnar og Helgu tekin um helgina í alvörunni, unnur beilaði seinast út af veikindum. Ætlaði að láta hana koma til sigló í brúnku en svo fattaði ég að það er ekki hægt að fara í ljós þarna!! sigló er nebblilega aðal pleisið!! ég meina það samt í alvöru

úrslit skoðannakönnnninnnarnnna



Allir mæla með unni og brúnkunni nema 4%, held sterklega að Unnur hafi kosið það.. ný skoðunarkönnun annars

og já allir að skoða UNNAR BLOGG FYRIR NEÐAN


» 4 hafa sagt sína skoðun

06.04.2006 18:37:49 / unnur

Indælt..mmm:)

Ahhhh! segji ég bara.  En hvað það er yndislegt að vera orðin frísk aftur:D Að geta hlaupið út í vorið áhyggjulaus...mmm, en indælt.  Þegar maður er búinn að vera veikur í viku og komið með svo mikið ógeð á öllu að maður nennir ekki einu sinni að horfa á TVið! þá er tími til að skella sér út og dekra pínu við sjálfan sig í leiðinni;) Kosningavika í fullum gangi og poppi og krapi(jammí;)) dælt í mann eins og ég veit ekki hvað...auðvita ekkert nema jákvætt eftir að hafa lifað á hafragraut og ab-mjólk í viku;) Skellti mér  í mollið með Sunnu og Helgu:D  Keypti mér eitt stykki buxur í boði mömmu;)  Síðan var tekið Cafe Blue á þetta eins og svo oft áður;P Og auðvita extra cream on my cake;P

» 1 hafa sagt sína skoðun

02.04.2006 16:10:32 / sunna

Afrakstur gærkvöldsins [MR-teiti]

Helga: 

  • Braut tölvuborð
  • Hrasaði í stiganum
  • Kyssti einhvern Kidda úr flensborg
  • Fékk 3 móðursýkisköst 
    -þegar hún sleit hálsmen í hitaleiksins
    -þegar hún ******
    - og þegar hún týndi töskunni
          

Auður:

  • Var alltaf að rústa einhverjum kertastjaka
  • Var með einhverjum gaur að nafni Daníel
  • Rústaði baðinu, út af áfengi og bjórdósum
  • Dó í sofanum, svo kom ég og berja hana með kodda og þá vaknaði hún


Katrín:

  • Svaf
  • ææi ég fylgdist ekki mikið með henni
  • spilaði haha


Sunna:

  • Autt
  • engill8)

» 9 hafa sagt sína skoðun

01.04.2006 12:39:36 / sunna

mi casa su casa

ÆjjÆjj.. MHingarnir búnir að tapa tvo daga í röð! Fyrst Gettu Betur og síðan Morfís. Gærdagurinn fróðlegur! Týndumst svo í Kóparvoginum að reyna að finna tebóið hjá MH sem var haldið á Shooters en svo fundu snillingarnir það... Íris að missa sig, Stefanía eiginlega líka, bæði út af ákveðnum, sama ákveðnum en svo þróaðist það allt annað hmm ;). Við hinar héldum kúlinu! Helga og Auður ákvöddu að fara snemma heim og lúlla.. Ásdís Eva stakk af með einum, Stefanía skutlaði mér svo heim, báðar bitrar og með 3 BL-ekaða menn aftur í sem voru í góðu stuði.
Kvöldið verður að vera gott! mjög gott! því næstu helgi er Sigló+páskafrí og síðan Flóórída :D:D


» 3 hafa sagt sína skoðun

29.03.2006 12:12:17 / unnur

The X-list

(x) reykt sígarettu
(x)drukkið áfengi                                                                                                 
() klesst bíl (sumir ekki ennþá komnir með bílpróf:S
() stolið bíl vinar/vinkonu (foreldranna)
() verið ástfangin/n
() verið sagt upp af kærasta/kærustu
() verið rekin/n úr vinnu
() lent í slagsmálum
() verið handtekin/n eða tekin/n af löggunni
(x) farið á blint stefnumót (mæli eindregið ekki með því..)
(x) logið að vini/vinkonu
(x
) skrópað í skólanum
() horft á einhvern deyja
() farið til Canada
() farið til Mexico (en fer til Argentínu eftir 5 mánuði:D)
(x) ferðast í flugvél
() kveikt í þér viljandi
() borðað sushi
() farið á sjóskíði
(x) farið á skíði
(x) farið á snjóbretti
(x) hitt einhvern sem þú kynntist á internetinu
(x) farið á tónleika
(x) tekið verkjalyf
(x) elskar einhvern eða saknar einhvers akkurat núna
(x) legið á bakinu úti og horft á skýin
(x) búið til snjóengil
(x) haldið kaffiboð
(x) flogið flugdreka
(x) byggt sandkastala
(x) hoppað í pollum
(x) farið í "tískuleik" (dress up)
(x) hoppað í laufblaðahrúgu
(x) rennt þér á sleða
(x) svindlað í leik
(x) verið einmana
(x) sofnað í vinnunni/skólanum
( ) notað falsað skilríki
(x) notað skilríki einhvers annars
(x) farið á skemmtistað
(x) horft á sólarlagið
(x) fundið fyrir jarðskjálfta (17.júní;))
(x) sofið undir berum himni                                                                                  
(x) verið kitluð/kitlaður
(x) verið rænd/rændur
(x) rænt einhverju                                                                                            
(x) verið misskilin/n
(x) klappað hreindýri/geit/kengúru
() farið yfir á rauðu ljósi/virt stöðvunaskyldu að vettugi
( ) verið rekin/n eða vísað úr skóla
() verið vísað úr tíma
(x) lent í bílslysi (E-ð smáræði þegar ég var 4 ára)
(x) verið með spangir/góm
() borðað líter af ís á einu kvöldi (kannski ekki líter!)
() dansað í tunglskininu
(x) fundist þú líta vel út
(x) verið vitni að glæp
(x) efast um að hjartað segði þér rétt til
() verið gagntekin/n af post-it miðum
() leikið þér berfætt/ur í drullunni
(x) verið týnd/ur
(x) synt í sjónum
(x) fundist þú vera að deyja
(x) grátið þig í svefn
(x) farið í löggu og bófa leik
( ) litað nýlega með vaxlitum
(x) sungið í karaókí
(x) borgað fyrir máltíð eingöngu með smápeningum (fátækur námsmaður;P)

(x) gert eitthvað sem þú lofaðir sjálfri/sjálfum þér að gera ekki
(x) hringt símahrekk
() hlegið þannig að gosið frussaðist út um nefið á þér
(x) stungið út tungunni til að ná snjókorni
() dansað í rigningunni
(x) skrifað bréf til jólasveinsins
() verið kysst/ur undir mistilteini
() horft á sólarupprásina með einhverjum sem þér þykir vænt um
(x) fengið 10 á prófi
() fengið 0 á prófi
(x) blásið sápukúlur
( ) kveikt bál á ströndinni
() komið óboðin/n í partý
() verið beðin/n um að yfirgefa partýið sem þú komst óboðin/n í
(x) farið á rúlluskauta/línuskauta
(x) hefur einhver óska þinna ræst
( ) farið í fallhlífastökk
( ) hefur einhver haldið óvænt boð fyrir þig
(x) pissað úti

Koma svo Sunna! ;)


» 0 hafa sagt sína skoðun

28.03.2006 17:23:12 / sunna

ef þú vissir ef þú bara vissir



Okey núna er komið að því.. subbulegir dagar framundan.
Á fimmtudag er undanúrslit í gettu betur MHvsMA fúffúfffúff.
Á föstudag er Úrslit í Morfís MHvsMR og brjálað tebó eftir á.
Á laugardag er brúnkumeðferð Unnar og Helgu tekin fyriR (myndir væntanlegar) og um kvöldið ætlum við stelpurnar kannski að fara að borða með mömmunum á laugardaginn :) og svo má ekki gleyma brjálaða partýinu eftir á.

Svo sambandi við skólann hmm það er annað mál bara 2 próf á morgun + ritgerð sem ég er ekki búin að læra neitt fyrir og líka próf á fimmtudag æjj æjj en svo bráðum 1 vika í flórída sööösshhh

-sunna krípí RASSA stokker-:$


» 11 hafa sagt sína skoðun

26.03.2006 19:18:06 / unnur

;P

Unnur mætt sterk til leiks;) Það er svosem ekkert merkilegt búið að drífa á daga mína en ég meina, hvað gerir maður?;) Gærkvöldið var ansi skrautlegt.  Byrjaði það á því að ég og Auður skelltum okkur niður í bæ að ná í smá skemmtilegheit:) síðan var stefnan tekin á breiðholtið.  En nei nei.  Hvað gerist, enginn nennir að skutla okkur í gettóið og við fastar.  Við gripum til þess örþrifaráðs að taka taxa.  Við mætum á staðinn og Helga einnig seinna.  Helga skemmti sér vel með tebollann sinn en við auður létum okkur nægja plastglas;) Síðan var haldið niður í bæ ásamt Hjálmari.  É skrapp aðeins inná Nasa en saknaði víst krakkanna of mikið og slóst aftur í för með þeim.  Tekinn var smá rúntur sem endaði á Devidos:D Skemmtilegt kvöld með nokkrum skrautlegum atriðum (nefnum engin nöfn..)

» 4 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 5